Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var ekki viðstaddur opinn samningafund Eflingar sem hófst klukkan eitt í Iðnó. Fyrr í vikunni tilkynnti Sólveig Anna borgarstjóra Reykjavíkur að Efling muni ekki eiga frekari viðræður við samninganefnd borgarinnar umfram það sem lög krefjast. Er þess krafist að kjaraviðræður við borgina fari héðan af fram fyrir opnum tjöldum og með beinni aðkomu borgarstjóra.
„Borgarstjóri hefur svarað okkur og sagt að hann ætli ekki að koma og hér verður því ekki um samningafund að ræða heldur verður tilboðið kynnt sem við lögðum fram í síðustu vikur. Okkur finnst það sannarlega leitt en ég get ekki sagt að það komi mér á óvart,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir í upphafi fundarins.
Dagur sagði í samtali við mbl.is í gær að hann vildi gera allt sem í hans valdi stendur til að flýta því að samningar náist í kjaraviðræðum Reykjavíkurborgar og Eflingar. Um leið vill hann ekki gera neitt sem grefur undan umboði samninganefndarinnar.
Sólveig Anna sagði á fundinum að samninganefnd Eflingar upplifi það svo að ekki hafi verið hlusta á samninganefndina í viðræðum við borgina hingað til. Nefndin vilji að viðræður fari farm fyrir opnum tjöldum til að tryggja lýðræðislegt ferli. „Það er það sem við trúum á. Við höfum ekkert að fela. Leyndin er versti óvinur láglaunafólksins,“ sagði Sólveig Anna.
Þá sagði hún borgaryfirvöld hafa komist upp með það árum saman að líta fram hjá lægst launaða fólkinu. „Borgaryfirvöld hafa ekkert gert til að uppræta skömmina og það er ástæðan fyrir því að við erum komin á þennan stað, að við erum á leið í verkfall. Ástæðan er ekki sú að við viljum ekki semja, það viljum við svo sannarlega gera,“ sagði Sólveig Anna.