Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ítrekaði að hann ætti engra sérstakra hagsmuna að gæta gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja þegar hann kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun.
Efni fundarins var frumkvæðisathugun á hæfi ráðherrans í ljósi stöðu hans gagnvart Samherja, en nefndin sendi upplýsingabeiðni til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fyrir um mánuði vegna málsins.
„Ég vil nefna það hér að ég á engra sérstakra hagsmuna að gæta gagnvart þessu fyrirtæki. Ég á engin tengsl við það önnur en að hafa um áratuga skeið þekkt einn aðaleiganda þess og þáverandi forstjóra. Það var mat mitt að þau tengsl yllu ekki vanhæfi mínu í málum sem vörðuðu ekki mikilsverða hagsmuni,“ sagði Kristján þegar hann tók til máls í upphafi fundarins.
Það er því mat ráðherra að starfsmenn ráðuneytisins hefðu verið hæfir til að fara með stjórnvaldsúrskurði sem tengjast Samherja. Kristján talaði sömuleiðis um traustsjónarmið og sagði að með því að segja sig frá málum Samherja í lok síðasta árs hefði hann viljað auka traust og tiltrú almennings á ráðuneytinu.
Nokkrir nefndarmenn spurðu Kristján út í símtal hans við Þorstein Má Baldvinsson, þáverandi forstjóri Samherja, þar sem ráðherra spurði hvernig Samherji ætlaði að bregðast við málinu.
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði hvort Kristján hefði, í umræddu símtali, verið að tala við Þorstein sem gamall vinur eða sem ráðherra, eða jafnvel hvort tveggja í senn. „Er það kannski kjarni málsins, er það í þessu sem kristallast ákveðið vanhæfi?“ spurði Guðmundur Andri.
Kristján Þór sagði þá að stundum gæti það verið erfitt að greina á milli þess hvort verið er að tala við vin eða forsvarsmann fyrirtækis. „Þetta er eins og þegar við erum að tala saman,“ sagði Kristján og vísaði í að þeir Guðmundur hafa þekkst frá námsárum sínum og síðar í þingmennskunni.
„En ég greini ekki á milli þessarar tilveru. Þú ert einn og sami maðurinn og ég er einn og sami maðurinn. Þú leggur ekkert mat á það við hvorn hluta sjálfsins þú ert að tala,“ sagði Kristján.
Kristján sagði það eitt af verkefnum ráðherra og hluta af athafnaskyldu hans að setja sig í samband við Samherja, eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins, og koma sjónarmiðum á framfæri þegar málið kom upp, þar sem það er þess eðlis að það geti skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata og formaður nefndarinnar, spurði sömuleiðis út í símtalið og þá vildi hún einnig vita hvort Kristján hefði rætt málefni Samherja við einhverja dagana sem liðu milli þess sem Stundin hafði samband við hann og þar til Kveikur var sýndur, en það var um vikutími.
„Ég hafði samband og ræddi þetta mál við fólk, eðlilega, og geri mínum nánustu samstarfsmönnum í stjórnmálum grein fyrir því sem er að koma upp. Þarna er til dæmis að koma upp mál sem snýr að einhverjum fundi sem ég hef ekki hugmynd um,“ sagði Kristján og vísaði í fund sem var í höfuðstöðvum Samherja í ágúst 2014. Kristján hefur áður sagt að hann hafi hvorki verið boðaður né sótt nokkurn fund þá um árið, heldur hafi hann verið beðinn um að taka í höndina á nokkrum einstaklingum er hann var staddur á skrifstofu Samherja.