Annar drengjanna sem lagðir voru inn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að þeir lentu í Hafnarfjarðarhöfn hefur verið fluttur á almenna deild. Þetta herma heimildir mbl.is en RÚV greindi fyrst frá því að drengurinn væri laus af gjörgæslu.
Hinn drengurinn er enn á gjörgæsludeild Landspítalans. Sá þriðji var fluttur á almenna deild eftir slysið en mbl.is er ekki kunnugt um líðan hans.
Piltarnir þrír voru í bíl sem fór fram af Óseyrarbryggju í Hafnarfirði fyrir rétt rúmri viku. Bíllinn hafnaði í sjónum. Slysið varð með þeim hætti að bíll piltanna, lítill jepplingur, fór í sjóinn við höfnina um klukkan 21 föstudagskvöldið 17. janúar.
Einn piltanna, sá sem var ekki fluttur á gjörgæslu, komst út úr bílnum af sjálfsdáðum en köfurum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu tókst að ná hinum tveimur piltunum út úr bílnum. Voru þeir allir fluttir á spítala hið snarasta.
Tveir piltanna eru fæddir árið 2002 og einn þeirra árið 2004.