Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda í atkvæðagreiðslu Eflingar um verkfallsaðgerðir gegn Reykjavíkurborg eða 95,5% hefur samþykkt verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslan stóð yfir í fimm daga og lauk á hádegi í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eflingu.
Þar segir að metþátttaka hafi verið í atkvæðagreiðslunni eða 59,2%, en alls voru 1.894 félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg á kjörskrá að þessu sinni. Af þeim greiddi 1.121 atkvæði.
Af greiddum atkvæðum samþykkti 1.071 eða 95,5% verkfallsboðun. Alls voru 34 á móti eða 3,1% og 16 tóku ekki afstöðu eða 1,4%. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fagnaði því að félagsmenn hefðu tekið undir tillögu samninganefndar um boðun verkfallsaðgerða.
„Ég hef fundið fyrir gríðarlegum baráttuvilja meðal starfsmanna í fjölmörgum heimsóknum mínum á vinnustaði borgarinnar síðan í haust. Fólk er orðið langþreytt á því að vinna fyrir sultarlaunum við vaxandi álag og erfiðar aðstæður. Metkosningaþátttaka, svo ekki sé talað um yfirgnæfandi vilja til aðgerða, sýnir svo ekki verður um villst að við erum á réttri leið og höfum fjöldann á bak við okkur. Með þennan vind í seglunum eru okkur allir vegir færir í baráttunni við borgina,“ er haft eftir formanninum í fréttatilkynningu.
Með atkvæðagreiðslunni hafa félgsmenn Eflingar samþykkt verkfallsboðun gagnvart Reykjavíkurborg. Formleg verkfallsboðun verður afhent borgaryfirvöldum og ríkissáttasemjara fyrir hádegi á morgun, mánudaginn 27. janúar.
Skipulag verkfallsaðgerða verður með eftirfarandi hætti: