Vegna viðhalds verður fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngum í kvöld og nótt, aðfaranótt 28. janúar á milli klukkan 22:00 og 06:00. Ástæðan er sú að unnið er að viðhaldi ganganna.
Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar.
Umferð verður stöðvuð við gangamunnann þar til fylgdarbíll kemur. Hann ekur á 20 mínútna fresti.