Sleppi ónauðsynlegum ferðum til Kína

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Ljósmynd/mbl.is

Sóttvarnalæknir mælir með að ferðamenn sleppi ónauðsynlegum ferðalögum til svæða þar sem faraldur kórónaveirunnar er í gangi.

Það á við um Kína, helst Hubei-hérað, en tilfelli hafa borist þaðan til annarra svæða í Kína og fleiri landa í nágrenninu.

Ekki er þó vitað til að faraldur hafi farið af stað annars staðar en í Kína, að því er segir á vefsíðu landlæknis.

Einnig vill sóttvarnalæknir hvetja einstaklinga á ferðalögum erlendis, sérstaklega þá sem eru í Kína og annars staðar þar sem sýkingar af völdum veirunnar hafa verið staðfestar að fylgjast vel með ferðatakmörkunum sem Kínverjar hafa gert innanlands og aðlaga ferðaáætlanir eins og þurfa þykir.

Einnig eru þeir hvattir til að gæta vel að almennu hreinlæti, sérstaklega handþvotti, forðast náið samneyti við einstaklinga sem eru með almenn kvefeinkenni/hósta og forðast samneyti við villt dýr eða dýr á almennum mörkuðum.

Sömuleiðis eru þeir hvattir til að nota klút fyrir vit við hnerra þegar um kvefeinkenni og/eða hósta er að ræða og láta heilbrigðisstarfsmenn vita um ferðir sínar ef einstaklingar þurfa að leita til heilbrigðiskerfisins hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert