Streymt frá baráttufundi opinberra starfsmanna

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. mbl.is/​Hari

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, BHM og BSRB standa fyrir baráttufundi opinberra starfsmanna í Háskólabíói í Reykjavík í dag og hófst hann klukkan 17:00.

Samhliða fara einnig fram fundir á sjö öðrum stöðum á landinu, Akureyri, Borgarnesi, Grundarfirði, Hólum í Hjaltadal, Ísafirði, Reykjanesbæ og Sauðárkróki.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mun opna baráttufundinn með stuttu ávarpi og í kjölfarið munu formenn stórra stéttarfélaga opinberra starfsmanna ávarpa hann.

Hér fyrir neðan má fylgjast með beinu streymi frá fundinum í Háskólabíói:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert