Undirbúa útfærslu á greiðsluþátttöku í innanlandsflugi

Flugvél Air Iceland Connect.
Flugvél Air Iceland Connect. mbl.is/Sigurður Bogi

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur falið verkefnahópi að útfæra framkvæmd greiðsluþátttöku ríkisins í farmiðakaupum íbúa á landsbyggðinni í innanlandsflugi.

Fyrirhuguð niðurgreiðsla er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að gera innanlandsflug að hagkvæmari kosti fyrir íbúa landsbyggðanna, að því er segir í tilkynningu.

Fyrirmyndin er meðal annars sótt í framkvæmd skoskra stjórnvalda á þessu sviði (Air Discount Scheme). Í hópnum eru fulltrúar Vegagerðarinnar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og þriggja flugfélaga í innanlandsflugi.

Markmiðið með greiðsluþátttökunni er að styðja við landsbyggðina og bæta aðgengi landsmanna að miðlægri þjónustu á höfuðborgarsvæðinu með því að gera innanlandsflug að aðgengilegri kosti í samræmi við áherslur samgönguáætlunar og flugstefnu.

Nær til íbúa allt að 270 km frá höfuðborgarsvæði

Í verkefnisáætlun hópsins segir að greiðsluþátttaka skuli taka til allra íbúa sem eiga lögheimili á svæðum í a.m.k. 270 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og/eða svæða þar sem aðrar sérstakar aðstæður kalla á slíka þátttöku svo sem eyja án vegasambands.

Greiðsluþátttaka mun takmarkast við ferðir sem farnar eru í einkaerindum og á eigin kostnað umsækjanda. Miðað skal við tiltekinn fjölda ferða á mann á ári og hámarkskostnað á ferð. Í leiðbeiningum til hópsins er gert ráð fyrir 40% greiðsluþátttöku ríkisins. Stefnt er að því að greiðsluþátttaka hefjist 1. september næstkomandi og til ársloka verði hægt að nýta niðurgreiðslu í einni ferð fram og til baka. Frá og með 1. janúar 2021 skuli greiðsluþátttaka miðast við þrjár ferðir fram og til baka.

Greiðsluþátttakan tekur ekki til flugleggja sem ríkið niðurgreiðir með öðrum hætti á grundvelli þjónustuskyldu (s.s. PSO-flug).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert