Brunabótamat fasteigna hér á landi hefur hækkað um tæpa þrjá milljarða frá því í árslok 2015.
Það fór yfir 10 þúsund milljarða núna í janúar, að því er fram kemur á vef Þjóðskrár.
Í lok árs 2015 nam brunabótamat allra fasteigna hér á landi rúmlega sjö þúsund milljörðum króna, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.