Starfshópur vegna innleiðingar á 5G

AFP

Fyrr í vikunni skipaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þriggja manna starfshóp um öryggi fjarskiptakerfa vegna innleiðingar 5G í íslenskt samfélag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu en þar segir að í starfshópnum eigi sæti fulltrúar frá ráðuneytum samgöngu- og sveitarstjórnarmála, dómsmála og utanríkismála.

„Starfshópnum er ætlað að meta þörf á breytingum á regluverki vegna öryggishagsmuna sem væru til þess fallnar að auka öryggi 5G-kerfa á Íslandi og tryggja traust og trúverðugleika erlendra sem innlendra aðila á íslenska fjarskiptakerfinu. Tilefni skipunar starfshópsins er að undanfarið ár hefur öryggi 5G farneta verið áberandi í opinberri umræðu í flestum ríkjum og mörg þeirra gripið til ýmissa ráðstafana til að viðhalda trausti til sinna fjarskiptakerfa. Þær ráðstafanir hafa þó verið með ýmsu móti.“

Enn fremur segir að innan Evrópu hafi verið unnið að samhæfingu í mati á ógnum og öryggisþörf. „Hinn 29. janúar sl. gaf Evrópusambandið út skjal þar sem lýst er aðgerðum sem taldar eru nauðsynlegar til þess að stuðla að öryggi 5G neta. Skjalið nefnist „Secure 5G deployment in the EU – Implementing the EU toolbox“. Skjal þetta ásamt einblöðungi sem gefur gott yfirlit um innihald skjalsins má finna á vef Evrópusambandsins. Starfshópurinn mun í vinnu sinni meðal annars styðjast við þetta skjal Evrópusambandsins og líta til þess hvernig grannríki okkar bregðast við í þessu máli.“

Þá kemur fram að fulltrúar starfshópsins hafi haldið fund með fulltrúum Póst- og fjarskiptastofnunar hinn 30. janúar sl. og kynnt þar fyrirhugaða vinnu starfshópsins á þessu sviði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert