Snarpur jarðskjálfti á Hengilssvæðinu varð klukkan 7:24 í morgun. Samkvæmt fyrstu skoðun er hann 3,6 að stærð. Skjálftinn á upptök sín um 4 km norðvestur af Hengilssvæðinu og var hann á 6,8 km dýpi.
Veðurstofunni hafa borist tugir tilkynninga um að skjálftinn hafi fundist víða á höfuðborgarsvæðinu, í Hveragerði og á Akranesi. Að svo stöddu hafa tíu mun minni eftirskjálftar mælst.
„Miðað við staðsetningu eru þetta líklega flekahreyfingar. Þetta er á mjög virku jarðskjálftasvæði,“ segir Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands. Skjálftinn fannst greinilega í byggð því hann var ekki langt frá höfuðborgarsvæðinu.
Þessi skjálfti á Hengilssvæðinu tengist ekki beint landrisi á Reykjanesi og mögulegri kvikusöfnun þar, að sögn Einars Bessa. Staðan þar er óbreytt en áfram mælist fjöldi smáskjálfta á því svæði.
„Þetta er áminning til fólks um að við búum á virku landi,“ segir Einar Bessi.
Síðast varð skjálfti stærri en 3,0 á Hengilssvæðinu í september 2019 og þar áður í febrúar 2018.