„Stundum efast ég um að allir átti sig á þessari 90.000 kr. hækkun á grunntaxtana og að lífskjarasamningarnir feli í sér um 30% hækkun grunnlauna hjá lægstu hópunum hjá borginni. Samt tala sumir eins og tilboðið mæti ekki hagsmunum þeirra sem eru á lægstu laununum.“ Þetta segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um kjaramálin á Facebook-síðu sinni.
Dagur bendir á að sterkur stuðningur sé við nýjan kjarasamning sem 17 aðildarfélög af 18 í Starfsgreinasambandinu samþykktu í gær. Aðeins Efling hefur ekki samið af félögunum í Starfsgreinasambandinu.
Dagur telur að stuðningurinn við samningana sé mikill vegna krónutöluhækkana upp á 90.000 kr. ofan á grunntaxta. Þar með eru allra lægstu laun í grunninn orðin um 400.000 kr. á mánuði.
Samningana þurfi að kynna mun betur, að mati Dags. Samningarnir byggja algjörlega á lífskjarasamningnum sem er einnig grunnurinn í tilboði borgarinnar til Eflingar.
Á hádegi í dag hefst verkfall félagsmanna Eflingar, sem starfa hjá Reykjavíkurborg, og lýkur á miðnætti fimmtudaginn 13. febrúar. Hjá borginni starfa um 1.850 félagsmenn í Eflingu á um 129 starfsstöðvum.