DNB hefur sagt upp viðskiptum við Samherja

DNB-bankinn hefur slitið viðskiptasambandi sínu við Samherja.
DNB-bankinn hefur slitið viðskiptasambandi sínu við Samherja. Af vef DNB

Norski bankinn DNB hefur sagt upp viðskiptum sínum við Samherja. Þetta staðfestir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Samherja, í samtali við mbl.is.

Norska ríkisútvarpið NRK greindi fyrst frá þessu í dag og fjallaði einnig um að efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar, Økokrim, rannsakaði færslur tengdar Samherja. Frá þessu var fyrst greint í lok nóvember á síðasta ári en þá birti norska lögreglan yfirlýsingu þess efnis í samráði við bankann.

Upp­lýs­inga­full­trúi DNB, Even Wester­veld, sagði þá í yfirlýsingu að bankinn hafi verið í góðu samstarfi við Økokrim og fyrst formleg rannsókn væri hafin gæti bankinn upplýst um allt sem vitað sé um Samherjamálið. 

Hann ítrekaði við það tækifæri að bankinn væri ekki grunaður um spillingu heldur Samherji.

Von er á viðtali við Björgólf Jóhannsson forstjóra Samherja vegna málsins hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert