Karlmaður á þrítugsaldri er líklega kjálkabrotinn eftir að lögregluþjónn skellti honum í jörðina þar sem maðurinn fylgdist með og tók upp aðra handtöku lögreglunnar í miðborg Reykjavíkur í nótt.
Greint er frá málinu á vef Fréttablaðsins.
Þar segir að við höggið hafi brotnað upp úr sex tönnum í manninum og hann hlotið skurð á hökuna.
Maðurinn hyggst ráðfæra sig við lögfræðing um framhaldið. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sagðist hafa óskað eftir því að málið yrði skoðað.