Félagsmenn Eflingar stéttarfélags vöktu athygli á virðingarleysi samfélagsins gagnvart umönnunarstörfum og lágum launum kvennastétta á Jafnréttisþingi í Hörpu í dag.
Talsvert stór hópur fólks gekk fylktu liði frá Eflingarhúsinu við Guðrúnartún 1 á setninguna í Hörpu. Hópurinn gekk rakleiðis inn í fundarsalinn og lét vel í sér heyra fyrir setninguna og einnig eftir ræðu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra sem setti þingið.
Spjöld voru á lofti og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, krafðist jafnréttis og réttlátra launa fyrir kvennastéttir, eins og vel mátti heyra þegar hún tók til máls á gólfinu við hlið sviðsins með gjallarhorn á lofti.