Stjórn læknaráðs hefur óskað eftir greiningu á fjölda stjórnenda, svo sem verkefnisstjóra og annarra starfsmanna sem ekki sinna klínískum störfum, á Landspítala. Beiðnin kemur í kjölfar boðaðra aðhaldsaðgerða á Landspítala vegna ónógra fjárveitinga miðað við núverandi rekstur spítalans. Framkvæmdastjórn spítalans hefur lýst því yfir að reynt verði að hlífa klínískri þjónustu sem er virðingarverð forgangsröðun.
Í ályktun læknaráðs segir að víða erlendis hafi kostnaður hins opinbera við stjórnsýslu í heilbrigðiskerfinu margfaldast undanfarna áratugi samfara aukningu á fjölda starfsmanna í stjórnunar- og skrifstofustörfum á meðan fjöldi klínískra starfsmanna hefur vaxið mun hægar. Stjórn læknaráðs hvetur Landspítala til þess að birta niðurstöður greiningar á fjölda stjórnendastarfa og til að rannsaka hvort þar séu tækifæri hvað varðar aðhaldsaðgerðir.
Stjórn læknaráðs leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja störf og starfsaðstæður sérhæfðs heilbrigðismenntaðs starfsfólks sem sinnir sjúklingum á Landspítala, „enda skulu hagsmunir og þarfir sjúklinga vera leiðarljós í þjónustu, rekstri og skipulagi spítalans,“ segir í ályktun ráðsins.