Samkvæmt áhættumati Sóttvarnastofnunar Evrópu aukast líkur á að tilfelli kórónuveirunnar COVID-19 komi til landa Evrópusambandsins eða Evrópska efnahagssvæðisins, þar með talið Íslands, frá öðrum löndum en Kína.
Þetta kemur fram í stöðuskýrslu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra vegna veirunnar.
Sóttvarnalæknir ráðleggur fólki að sleppa ónauðsynlegum ferðum til Lombardia, Venetó, Emilía Rómanja og Píemonte á Ítalíu. Ekki er mælt gegn því að fólk ferðist á skíðasvæði á Norður-Ítalíu en þau eru utan áhættusvæða og engin tilfelli hafa verið tilkynnt þaðan.
Enn hefur enginn greinst með kórónuveiruna COVID-19 á Íslandi, en alls hafa 33 sýni verið rannsökuð.
Í skýrslunni kemur fram að fjöldi tilfella í löndum utan Kína hefur aukist síðastliðna daga, þar á meðal hafi þeim fjölgað úr þremur í 132 á Ítalíu.
Ferðamenn sem fá einkenni og eru nýkomnir heim frá sveitarfélögum á Ítalíu þar sem sýkingar hafa greinst ættu að hringja í 1700 og greina frá ferðasögu sinni.
Enn fremur segir að litlar líkur séu á því að veiran verði lýðheilsuógn í löndum Evrópu sem beiti einangrunar- og sóttkvíaðgerðum. Sýkingin geti hins vegar orðið íþyngjandi fyrir þá sem sýkjast.