Tveir Íslendinganna sjö sem eru í sóttkví á hóteli á Tenerife eftir að kórónuveirusmit greindist hjá hótelgesti í gær áttu að koma heim með flugi í dag.
„En þau eru í ágætisyfirlæti eftir því sem ég best veit. Fararstjórinn okkar hefur verið í sambandi við þau,“ segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vitaferða, í samtali við mbl.is. Sjömenningarnir eru á H10 Costa Adeje Palace-hótelinu á vegum Vita. Alls eru um 1.000 gestir og starfsfólk hótelsins í sóttkví.
Ítalskur læknir greindist með COVID-19-veiruna í gær og í kvöld fékkst það staðfest að eiginkona hans er einnig smituð.
Tíu hafa afbókað ferð til Tenerife með Vita sem fer á morgun, en alls eru 180 sæti í vélinni. „Það eru einstaklingar sem eru kannski með undirliggjandi sjúkdóma og afbóka af heilsufarsástæðum og eru með læknisvottorð,“ segir Þráinn.
Fyrr í dag afbókuðu fimm einstaklingar ferð til Tenerife með ferðaskrifstofunni Heimsferðum með flugi sem fór í loftið í hádeginu í dag með flugfélaginu Norwegian.
Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrvals-Útsýnar, segir að nokkrar afbókanir hafi borist ferðaskrifstofunni í dag á ferðum sem fyrirhugaðar eru næstu dagar en gat ekki gefið upp nákvæma tölu þegar eftir því var leitað.
Úrval-Útsýn er með tvær ferðir til Tenerife í vikunni og eina til Veróna á Ítalíu á laugardaginn. „Við höldum ró okkar og fylgjumst vel með og erum vel upplýst,“ segir Þórunn, en ferðaskrifstofan hefur bent viðskiptavinum sínum á ráðleggingar landlæknis vegna ferðalaga til Norður-Ítalíu og Tenerife, hafi þeir spurningar um ferðaáætlanir sínar.