Fimm handteknir með fíkniefni í og við göngin

„Fimmmenningarnir voru á tveimur bifreiðum, önnur var stöðvuð í Hvalfjarðargöngunum …
„Fimmmenningarnir voru á tveimur bifreiðum, önnur var stöðvuð í Hvalfjarðargöngunum en hin við norðurenda þeirra. Hinir handteknu voru færðir á lögreglustöð, en í fórum þeirra fundust fíkniefni. Málið telst að mestu upplýst,“ segir í tilkynningu lögreglu vegna málsins. mbl.is/Eggert

Fimm voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í og við Hvalfjarðargöngin á tíunda tímanum í morgun eftir að lögreglu bárust upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir.

Frá þessu greinir lögregla í tilkynningu, en mbl.is fjallaði um málið fyrr í morgun og greindi frá því að handtökur hefðu átt sér stað við göngin.

„Fimmmenningarnir voru á tveimur bifreiðum, önnur var stöðvuð í Hvalfjarðargöngunum en hin við norðurenda þeirra. Hinir handteknu voru færðir á lögreglustöð, en í fórum þeirra fundust fíkniefni. Málið telst að mestu upplýst,“ segir í tilkynningu lögreglu vegna málsins.

Við aðgerðirnar í morgun naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögreglunnar á Vesturlandi og sérsveitar ríkislögreglustjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert