Ráðin listrænn stjórnandi Listar án landamæra

Birta Guðjónsdóttir.
Birta Guðjónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri og myndlistarmaður, hefur verið ráðin listrænn stjórnandi Listar án landamæra.

List án landamæra er listahátíð sem leggur áherslu á list fatlaðra listamanna. Hátíðin hefur verið haldin síðan 2003 og sýnir hún allar listgreinar. 

Í tilkynningu kemur fram að Birta er reynslumikil en hún var meðal annars sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum 2019, sýningu Hrafnhildar Arnardóttur/Shoplifter og einn af fjórum sýningarstjórum Momentum 8 — Norræna tvíæringsins í samtímamyndlist, í Moss í Noregi.

Síðustu ár hefur Birta stýrt yfir 40 sýningum í helstu listrýmum og listasöfnum hérlendis sem og víða erlendis, m.a. í Berlín, Amsterdam, Melbourne, New York, Sánkti Pétursborg og á Norðurlöndunum.

Birta var safnstjóri Nýlistasafnsins árin 2009 til 2011, listrænn stjórnandi sýningarýmisins 101 Projects í Reykjavík og var sýningarstjóri í SAFNi, samtímalistasafni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur, á árunum 2005 til 2008. Á árunum 2002 til 2013 rak hún sýningarýmið Gallerí Dvergur í kjallara heimilis síns í Reykjavík. Þá hefur Birta einnig sýnt sín eigin verk á fjölda sýninga, bæði samsýningum og einkasýningum.

Hún er með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, MFA-gráðu í myndlist frá frá Piet Zwart Institute í Rotterdam i Hollandi og nam listfræði (Critical and Pedagogical Studies) við Listaakademíuna í Malmö.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert