37 manns hafa greinst með kórónuveiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómnum hér á landi. Tvö tilfelli hafa bæst við þau sem greindust í gær. Frá þessu er greint á Facebook-síðu almannavarna en smitin fengust staðfest á stöðufundi almannavarna í morgun.
Fólkið sem greinst hefur er á aldrinum 44-67 ára og enginn er alvarlega veikur. Smitin má öll rekja til Norður-Ítalíu eða Austurríkis.
368 sýni hafa verið greind og tæplega 400 manns eru í sóttkví.