Á tólfta tímanum í kvöld var gert hlé á kjaraviðræðum í húsi ríkissáttasemjara. Í fyrramálið klukkan tíu setjast aftur að samningaborðinu samninganefndir sjúkraliðafélags Íslands, Sameykis og BSRB og ræða við ríki, sveitarfélög og Reykjavíkurborg. Þessar samninganefndir funduðu stíft í dag, frá morgni til kvölds.
Þetta staðfestir Elísabet Sigurveig Ólafsdóttir, skrifstofustjóri ríkissáttasemjara, við mbl.is í kvöld.
Stéttarfélagið Efling og Reykjavíkurborg gerðu hlé á kjaraviðræðum sínum um kvöldmatarleytið. Samkvæmt færslu Eflingar á Facebook er stefnt að því að halda áfram að funda um helgina. Ekki hefur verið ákveðin tímasetning á þeim fundi, að sögn Elísabetar.