Vél Icelandair frá Veróna lenti í Keflavík á sjötta tímanum með um 80 farþega innanborðs. Rögnvaldur Ólafsson, verkefnastjóri almannavarna, segir í samtali við mbl.is að ekki sé vitað til þess að nokkur farþeganna hafi einkenni COVID-19, sjúkdómsins sem kórónuveiran veldur. „En það verða allir sendir í sóttkví,“ segir Rögnvaldur enda sé Ítalía skilgreind sem hættusvæði vegna veirunnar.
Gerðar hafa verið ráðstafanir til að tryggja að farþegarnir muni ekki eiga samneyti við aðra farþega á Keflavíkurflugvelli. Þannig eru sérstök salerni í móttökurými vallarins til að mynda ætluð farþegunum, og verða þau síðan sótthreinsuð. Farþegum, sem ekki eru á einkabíl, verður boðið að ferðast heim í sérstakri sóttvarnarútu.
Hluti farþeganna sem um ræðir var í skíðaferð á vegum ferðaskrifstofanna Úrvals-Útsýnar og Vita.
Almannavarnir hér á landi hafa verið í sambandi við kollega sína erlendis, til að mynda í Austurríki þaðan sem hluti smituðu Íslendinganna kom. „Í Austurríki vissu þeir voða lítið um þetta,“ segir Rögnvaldur og vísar til þeirrar staðreyndar að Íslendingar sem hafa verið á skíðasvæðum í Austurríki hafi borið með sér veiruna. „Það var margt sem kom á óvart í þessu samtali og virðist sem ekki sé eins mikið samstarf milli almannavarna og heilbrigðisgeirans og hér.“