Í dag hafa greinst fimm ný smit. Þrjú þeirra eru innlend og má rekja þau til einstaklinga sem voru á hættusvæðum erlendis. Hinir tveir sýktust erlendis. Tveir þeirra eru á þrítugsaldri, einn á fertugsaldri, einn á fimmtugsaldri og einn á áttræðisaldri.
Allir búa á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi smitaðra er því orðinn 50 talsins, þar af eru sjö innanlandssmit.
Nú hafa samtals hafa 484 sýni verið greind þar af 42 í dag. Á fjórða hundrað einstaklinga voru í sóttkví á hádegi í dag. Í sóttvarnarhúsi á Rauðarárstíg dvelja tveir erlendir ríkisborgarar. Sýni var tekið úr öðrum þeirra í dag og reyndist það neikvætt. Hinn einstaklingurinn sýnir engin einkenni COVID-19 sjúkdómsins.
Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag kom fram að aðgerðir sem nú eru að fara í gang vegna kórónuveiru væru að beina sjónum að viðkvæmustu hópunum í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að þeir smitist.
Ríkislögreglustjóri lýsti í gær yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónaveiru (COVID-19) eftir að fyrstu smit innanlands voru staðfest. Ekki hefur verið lagt á samkomubann.
Leiðbeiningar Embættis landlæknis fyrir einstaklinga með áhættuþætti fyrir alvarlegri sýkingu COVID-19 er hægt að nálgast á vef landlæknis.
Fréttin var uppfærð klukkan 16:55