Mikil snjókoma var á landinu norðan- og austanverðu í gær.
Á Siglufirði kyngdi niður snjónum og var styttan af Gústa guðsmanni heldur einmana þar til ljósmyndara bar að garði.
Þurfti að loka öllum vegum á Tröllaskaga en gert er ráð fyrir að þeir verði opnaðir í dag.