Ríkisstjórnin fundar í Stjórnarráðinu klukkan 13 í dag. Ekki hefur verið gefin út dagskrá vegna fundarins en mjög líklegt er að rædd verði viðbrögð nágrannaríkja við kórónuveirunni.
Þetta herma heimildir mbl.is.
Danir hafa lokað landamærum sínum til að hefta útbreiðslu veirunnar. Norðmenn hafa einnig lokað landinu fyrir ferðamönnum sem koma frá löndum utan Norðurlandanna.