Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19, staðfestra smita hér á landi, aðgerða stjórnvalda og fleira.
Á fundinum verður sjónum sérstaklega beint að skólum landsins og mun Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, fara yfir þá stöðu sem blasir við vegna samkomubanns sem hefst á miðnætti í dag.
Jafnframt mun Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, ræða stöðu og verkefni heilsugæslunnar.
Mbl.is fylgist með því sem fram fer á fundinum.