Sundstöðum og íþróttamiðstöðvum lokað

Laugardalslaug.
Laugardalslaug. mbl.is/Kristinn Magnússon

Öllum sundstöðum og íþróttamiðstöðvum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað á morgun vegna kórónuveirunnar og verður dagurinn nýttur til ákvarðanatöku um framhaldið í samstarfi við viðeigandi aðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Fjöldatakmarkanir miðast við 100 manns í sama rými í einu og tveggja metra fjarlægð verði milli einstaklinga. Sundlaugar eiga á flestum tímum dagsins að geta uppfyllt fyrra skilyrðið en tveggja metra fjarlægð er erfitt að uppfylla í sundlaugum og í íþróttahúsum. Það er ljóst að samkvæmt þeim tilmælum sem borist hafa mun íþróttastarf og rekstur íþróttamannvirkja riðlast á næstunni, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Endurskipuleggja þarf verkferla með tilliti til nýrra krafna um sóttvarnir og til að tryggja öryggi gesta og starfsmanna sundlauga og íþróttamiðstöðva.

Ekki fleiri en 20 nemendur

Á morgun verður starfsdagur í grunn- og leikskólum höfuðborgarsvæðisins en eftir það verður kennsla í hópum með ekki fleiri en 20 nemendum og ekki verður um blöndun hópa að ræða innan skóladagsins.

Skólar munu halda úti eins miklu skólastarfi og kennslu og kostur er við þessar aðstæður. Það verður í höndum hvers sveitarfélags og skóla að útfæra skiptingu kennslu milli viðveru í skóla og náms heima. Nákvæm útfærsla verður því ólík milli skóla á höfuðborgarsvæðinu, að því er segir í tilkynningu frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Öll hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum mun falla niður og íþrótta- og sundkennsla verður í formi hreyfingar á skólalóð, inni í hópastofum eða annarrar útikennslu. Hver skóli skipuleggur nánari tilhögun skóladagsins og kennslutilhögun. Sér- og starfsdeildir verða með óbreytta starfsemi eftir fremsta megni. Þá verður matarþjónusta í boði í skóla ef mögulegt er að koma því við. Öll neysla á mat fer fram í heimastofum eða í matsal skóla þar sem því verður við komið. Vettvangsferðir falla niður ásamt ferðum í skólabúðir.

Öryggið í fyrirrúmi á leikskólum

Gert er ráð fyrir því að halda starfsemi leikskóla á höfuðborgarsvæðinu gangandi á sem öruggastan hátt með þeim hætti að börn verði í sem minnstum hópum og aðskilin sem mest. Vegna þessa raskast skólastarf í leikskólum og starfstími getur breyst, s.s. vegna þrifa sem nauðsynleg eru. Hver leikskóli á höfuðborgarsvæðinu mun upplýsa foreldra um útfærslu á skólastarfi á heimasíðu eða í gegnum aðra miðla.

Frístundaheimili verða opin í framhaldi af skóladegi yngstu nemenda en viðbúið er að starfsemi muni að einhverju leyti skerðast.

Starfsemi félagsmiðstöðva tekur breytingum þar sem megináhersla verði á að mæta félagsþörf án þess að skörun verði milli hópa eða bekkja. Til dæmis með hópaskiptingu eða árgangaskiptingu í opnunum og lögð áhersla á hópastarf en ekki stærri samkomur. Nákvæm útfærsla verður ólík milli félagsmiðstöðva.

Tónlistarskólar og skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu

Tímar í hljóðfærakennslu og söngkennslu fara fram í húsnæði eða heimastöð tónlistarskóla eða skólahljómsveita. Hóptímar s.s. hljómsveitartímar, hópæfingar, tónfundir, forskóli og tónfræðitímar falla niður. Allir viðburðir tengdir þessari starfsemi falla niður. Viðmið þessi taka einnig til tónlistarnemenda sem eru eldri en 18 ára. Lögð er áhersla á að leitað sé leiða til að viðhalda virkni óháð fjarveru og niðurfellingu tónlistartíma. Nákvæm útfærsla verður ólík milli skóla.

Skólaíþróttir og íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu

Ekki verður hefðbundin íþrótta- og sundkennsla á vegum grunnskóla í samkomubanninu. Viðkomandi húsnæði verður lokað fyrir skólakennslu og íþrótta- og sundkennarar vinna með námshópnum í heimastofu eða úti á skólalóð. Íþróttafélög munu gefa út eigin tilkynningar um íþróttaæfingar. Tilkynningar eru þegar komnar frá íþróttasamböndum um leikjabann.

Menningarstofnanir opnar

Söfnin á höfuðborgarsvæðinu, listasöfn, bókasöfn og sögusöfn halda óbreyttum afgreiðslutíma þrátt fyrir samkomubann en boðuðum viðburðum verður aflýst eða frestað, svo sem leiðsögnum, listsmiðjum og málþingum, á meðan samkomubannið er í gildi. Á söfnum eru gestir hvattir til að hafa hæfilega fjarlægð sín á milli. Áfram verður lögð áhersla á aukin þrif í söfnunum á höfuðborgarsvæðinu umfram venjubundna ræstingu.

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við eiga. Þá eru íbúar jafnframt hvattir til að fylgja leiðbeiningum landlæknis um viðbrögð við veirunni inn á covid.is. Við erum öll almannavarnir, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert