„Við erum ekki búin að átta okkur á því hvað þetta þýðir og hvað Ísland gerir. Þetta er það sem maður hefur séð að undanförnu, að ferðabönn eru sett á í fleiri löndum,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Iceland Group, spurður um fyrirhugað ferðabann Evrópusambandsins og Schengen-ríkjanna og mögulega aðkomu íslenska ríkisins að því.
Fyrr í dag lagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, til að sambandið lokaði landamærum sínum fyrir ónauðsynlegum ferðalögum og farþegaflutningum milli landa. Í kvöld var fundur í utanríkisráðuneytinu og á þeim fundi sitja meðal annars Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Michael Mann, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. Málið verður tekið fyrir á fundi ríkisstjórnarinnar í fyrramálið.
Bogi segir að þar sem fólk ferðast minna þýðir það að leiðarkerfið er skorið meira niður. Fleiri lönd hafa boðað lokun sem hefur áhrif á flugfélög um allan heim. Í dag rauf Icelandair um 60% af leiðarkerfinu sínu og útlit fyrir að það haldi áfram að minnka.
„Það veltur alfarið á því hvernig eftirspurnin er og hvort einhverjir séu að ferðast og bóka flug,“ segir hann spurður hvernig sviðsmyndin yrði ef boðið yrði upp á flug innan Shengen-svæðisins.
Bogi segir fyrirtækið vera í góðu sambandi við íslensk stjórnvöld um áhrif þróun mála á heimsvísu vegna kórónuveirunnar. Hann reiknar ekki með að vera í sambandi við stjórnvöld í kvöld en segist ekki vita hvað morgundagurinn hefur í för með sér.
Fyrr í dag greindi Bogi Nils frá því í samtali við mbl.is að staðan væri þröng hjá félaginu og hún kallaði jafnframt eftir sársaukafullum aðgerðum.