Fjárþörf ríkissjóðs mun aukast umtalsvert vegna COVID-19

Í ljósi atburða síðustu vikna í tengslum við Covid-19 er …
Í ljósi atburða síðustu vikna í tengslum við Covid-19 er fyrirsjáanlegt að fjárþörf ríkissjóðs mun aukast umtalsvert frá fyrri spám. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ákveðið hefur verið að auka útgáfu ríkisbréfa á öðrum ársfjórðungi þannig að hún getur orðið allt að 40 milljarðar kr. Þetta kemur fram í sérstakri fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins vegna útgáfumála ríkissjóðs. 

Fram kemur, að í ljósi atburða síðustu vikna í tengslum við Covid-19 sé fyrirsjáanlegt að fjárþörf ríkissjóðs muni aukast umtalsvert frá fyrri spám.  Mikil óvissa sé um efnahagshorfur næstu mánuði og því sé erfitt að meta lánsfjárþörf ríkissjóðs fyrir yfirstandandi ár. Einnig sé óljóst hversu mikil þörfin verður annars vegar til skemmri tíma og hins vegar til lengri tíma.

Staðan er traust

„Rétt er að hafa í huga að skuldastaða ríkissjóðs er lág. Heildarskuldir eru um 854 ma.kr. sem nemur um 27,5% af vergri landsframleiðslu. Engin innlend ríkisbréfaútgáfa er á gjalddaga það sem eftir lifir ársins og einungis 292 milljónir evra (45 ma.kr.) er á gjalddaga í júlí.

Ríkissjóður hefur ýmsar leiðir til þess að sækja fjármagn á markaði. Hægt er að auka útgáfu ríkisbréfa á innlendum markaði en útgáfa samkvæmt ársáætlun fyrir yfirstandandi ár er nú við sögulegt lágmark eða um 40 ma.kr. árinu. Ríkissjóður getur jafnframt gefið út skuldabréf á erlendum mörkuðum. Þá getur ríkissjóður mætt versnandi sjóðstöðu með aukinni útgáfu ríkisvíxla eða skammtímalántöku á peningamarkaði. Lausafjárstaða ríkissjóðs í íslenskum krónum nemur nú 44 ma.kr. Að lokum á ríkissjóður um 169 ma.kr. í erlendum innstæðum í Seðlabankanum. Staðan er því traust og engin ástæða til þess að óttast að ríkissjóður hafi ekki úrræði til að ráða við mikið tekjufall og fjármögnunarþörf á næstu vikum og mánuðum ef það verður raunin,“ segir í tilkynningunni. 

„Ákveðið hefur verið að auka útgáfu ríkisbréfa á öðrum ársfjórðungi þannig að hún getur orðið allt að 40 ma.kr. Nánari útfærsla verður birt í ársfjórðungsáætlun í lok þessa mánaðar. Það þýðir að útgáfan á árinu mun aukast verulega frá því sem tilkynnt var í ársáætlun,“ segir ennfremur. 

Tekið er fram að erfitt sé á þessari stundu að leggja mat á heildarþörf fyrir ríkisbréfaútgáfu á yfirstandandi ári. Áður en hægt sé að taka ákvörðun um það þurfi að liggja fyrir nánari upplýsingar um lánsfjárþörf ríkissjóðs, sem mun skýrast á næstu vikum og mánuðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert