Landris er hafið að nýju við Þorbjörn á Reykjanesi, en það er hægara nú en það sem mældist í lok janúar. Þetta staðfesta bæði gps-mælingar á svæðinu og einnig gögn frá gervihnöttum. Vísindamenn á Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans og Ísor funduðu í morgun og rýndu nýjustu mælingar og gögn.
Líklegast er að kvikusöfnun hafi tekið sig upp að nýju á sama stað. Engin merki eru þó um gosóróa. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands, en vísindaráð almannavarna kemur saman í næstu viku.
Landrisið er á sömu slóðum og það var í lok janúar. Verulega hafði dregið úr því í lok febrúar og virtist það hafa stöðvast tímabundið. Nýjustu gögn sýna að frá byrjun mars hefur land risið rétt innan við 20 mm.
„Landrisið núna virðist mjög hægt og mun hægara en í lok janúar. 20 mm er í raun sáralítið landris og mjög erfitt að greina svo litla breytingu með þeirri tækni sem fyriri hendi er. Oft þarf því að safna gögnum í einhverja daga til að fá það staðfest að landris hafi orðið eða eigi sér stað,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands. „Nú erum við farin að sjá merki um landris og benda okkar útreikningar til þess að það eigi sér svipaðan uppruna og landrisið í janúar,“ segir Benedikt.