Frá og með morgundeginum er Íslendingum og öðrum með búsetu á Íslandi sem koma til landsins skylt að fara í tveggja vikna sóttkví án tillits til hvaðan þeir eru að koma.
Þetta kemur fram á vefsíðu almannavarna.
Undanþegnar þessu eru flugáhafnir og áhafnir flutningaskipa.