Átján sóttu um gamla starfið hans Stefáns

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Átján sóttu um starf borgarritara hjá Reykjavíkurborg, en umsóknarfrestur var til og með 16. mars. Starfið var auglýst eftir að Stefán Eiríksson sagði starfi sínu lausu, en hann var ráðinn útvarpsstjóri.

Meðal þeirra sem sækja um starfið eru fyrrverandi formaður slitastjórnar Glitnis, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins og fyrrverandi útgefandi Fréttablaðsins.

Umsækjendurnir eru:

  • Artis Arturs Freimanis vélstjóri
  • Árdís Rut Hlífardótir framkvæmdastjóri
  • Birna Ágústsdóttir skrifstofustjóri
  • Elín Björg Ragnarsdóttir verkefnastjóri
  • Friðjón Már Guðjónsson bókhaldsfulltrúi
  • Guðbjörg Ómarsdóttir gæðastjóri
  • Gunnsteinn R. Ómarsson lánastjóri
  • Hans Benjamínsson aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
  • Jón Þór Sturluson dósent
  • Jónas Skúlason skrifstofustjóri
  • Kristín Þorsteinsdóttir MBA
  • Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
  • Óli Örn Eiríksson deildarstjóri
  • Ólöf Hildur Gísladóttir lögfræðingur
  • Salvör Sigríður Jónsdóttir félagsliði
  • Sólveig Dagmar Þórisdóttir framkvæmdastjóri
  • Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir lögfræðingur
  • Þorsteinn Gunnarsson sveitarstjóri

Steinunn var áður formaður slitastjórnar Glitnis, Jón Þór var aðstoðarforstjóri FME og Kristín var útgefandi og ritstjóri Fréttablaðsins. Þá er Elín fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fiskframleiðenda.

Intellecta mun halda utan um ráðningarferli í samvinnu við hæfnisnefnd sem borgarráð skipaði. Hæfnisnefndina skipa Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem jafnframt er formaður, Ásta Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Landspítalans, og Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert