Slökkvistarfi lauk í húsnæði Pablo discobar við Veltusund 1 um fjögur í nótt. Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er tjónið mikið og mikil mildi að ekki fór verr.
Slökkviliðsmenn af öllum stöðvum höfuðborgarsvæðisins og aukamannskapur á frívöktum voru kallaðir út þegar tilkynnt var um eld í húsinu um klukkan 23 í gærkvöldi.
Þrítugur maður var handtekinn á vettvangi og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er maðurinn vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Rjúfa þurfti þak hússins að hluta en að sögn varðstjóra í slökkviliðinu var eldurinn bundinn við þriðju hæð hússins þar sem Pablo discobar er til húsa. Töluverðar skemmdir urðu á húsnæðinu vegna elds, sóts og vatns á öllum hæðum hússins.
Brunaveggur er á milli húsanna þar sem eldurinn kom upp og beindist slökkvistarf einnig að því að passa að eldur bærist ekki í nærliggjandi hús.
Slökkviliðið hefur afhent lögreglu vettvanginn og annast hún rannsókn á upptökum eldsvoðans. Ekki er vitað um eldsupptök en tæknideild lögreglunnar hefur rannsókn síðar í dag.