Einungis verður boðað til þingfunda Alþingis um mál sem tengjast kórónuveirufaraldrinum. Starfsáætlun Alþingis hefur verið tekin úr sambandi frá og með deginum í dag og fram til 20. apríl. Þetta samþykkti forsætisnefnd.
„Brottfall starfsáætlunar þýðir einnig að komið getur til þingfunda á þeim tíma sem áður var reiknað með fundahléi um páska, en þá eingöngu af sömu ástæðum, þ.e. ef brýnt verður að grípa til ráðstafana vegna ástandsins og atbeina Alþingis þarf til.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþingi.
Hefðbundin fundaáætlun fastanefnda Alþingis hefur sömuleiðis verið tekin úr sambandi. Eingöngu verður boðað til funda í þeim nefndum sem tengjast viðbrögðum við kórónuveirufaraldrinum. Sækja þarf sérstaklega um leyfi til að aðrar fastanefndir komi saman til forseta nefndasviðs og fá samþykki hans.