Meindýraeyðir Reykjavíkurborgar hefur hirt alls 51 hræ af kanínu í Elliðaárdal á síðustu tveimur dögum. Af þessum hræjum hefur Matvælastofnun sent 10 þeirra í sýnatöku og krufningu á Keldur. Stofnuninni barst fjölda ábendinga um dauðar kanínur í dalnum bæði frá almenningi sem og frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Greint verður frá niðurstöðunni um leið og hún liggur fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.
Fyrr í dag ræddi mbl.is við Margréti Sif Sigurðardóttur, sem er ein þeirra sem fer í hverri viku að gefa kanínum í Elliðaárdalnum að éta, og óttast hún að eitrað hafi verið fyrir kanínunum í dalnum. Engar dauðar kanínur sé að finna í sjálfum skóginum, bara á og í kringum göngu- og hjólastíginn.