Lýst eftir Sean Aloysius Marius Bradley

Sean Aloysius Marius Bradley.
Sean Aloysius Marius Bradley. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sean Aloysius Marius Bradley sem fæddur er 22. apríl 1957 og skráður til búsetu að Austurvegi 34 á Selfossi.

Sean er 167 sm hár. Hann er hreyfiskertur og á gengur einungis stuttar vegalengdir án stuðnings, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu. 

„Eftir því sem næst verður komist hélt hann til Malaga á Spáni í júni 2018 en ekki hefur frést af honum eftir það eða tekist að staðfesta hvar hann kunni að vera. Nánustu ættingjar Sean eru búsettir í Bretlandi og hafa óskað eftir því að lýst verði eftir honum á alþjóðavísu.  

Þeir sem mögulega kunna að hafa upplýsingar um hvar Sean Bradley er að finna eða ferðir hans eru beðnir að koma þeim upplýsingum til lögreglunnar á Suðurlandi á netfangið sudurland@logreglan.is eða í síma +354 444-2000,“ segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert