Kynningarátak Árvakurs, Stöndum saman, hófst nú um helgina og hefur urmull ábendinga nú þegar borist á netfangið stondumsaman@mbl.is.
Ábendingarnar eiga nær allar sameiginlegt að sýna hversu öflugur samhugur okkar er þegar hætta steðjar að samfélagi okkar.
Til að mynda hafa íþróttafélög, skólar og einstaklingar víðs vegar um landið tekið að sér að ryðja snjó fyrir þá sem ekki geta sinnt því sjálfir nú. Morgunblaðið, mbl.is og K100 munu greina frá því helsta.