Fyrsta kórónuveirutilfellið á Austurlandi

Egilsstaðir.
Egilsstaðir. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Fyrsta tilfelli kórónuveirunnar var staðfest á Austurlandi í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

Þar segir að hinn smitaði er í einangrun og er ekki mikið veikur.

Samkvæmt hefðbundnu verklagi er unnið að smitrakningu af hálfu smitrakningateymis sóttvarnalæknis og ríkislögreglustjóra.

Þar með hefur komið upp smit í öllum landshlutum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka