Hert samkomubann tók gildi þegar klukkan sló eina mínútu yfir miðnætti. Rúm vika er síðan samkomubann tók gildi hér á landi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og er það í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins sem slíkt bann er sett.
Hert samkomubann felur einna helst í sér að mörk mannfjölda við skipulagða viðburði færist úr 100 manns niður í 20 manns. Í banninu sem tók gildi nú á miðnætti er sérstök undanþága fyrir matvöru- og lyfjaverslanir.
Vika er síðan samkomubann tók gildi og voru mörk sett við 100 manns, en nú hefur talan verið færð niður í 20. Líkt og í fyrra banni þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna sé að minnsta kosti yfir tveir metrar við öll minni mannamót og að aðgengi að handþvotti og handspritti sé gott.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller landlæknir. Útfærsla heilbrigðisráðherra á hertu samkomubanni sem tók gildi á miðnætti fylgir í einu og öllu tillögum sóttvarnalæknis þess efnis.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Helstu áhrif frekari takmörkunar eru eftirfarandi:
- Allar fjöldasamkomur þar sem fleiri en 20 manns koma saman eru óheimilar meðan takmörkunin er í gildi. Á það jafnt við hvort sem fólk kemur saman í opinberum rýmum eða einkarýmum.
- Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. tvo metra á milli einstaklinga.
- Á öllum vinnustöðum eða þar sem önnur starfsemi fer fram skal vera tryggt að ekki séu fleiri en 20 einstaklingar í sama rými. Þessar takmarkanir eiga einnig við um almenningssamgöngur og aðra sambærilega starfsemi.
Matvöruversalnir verða áfram opnar þrátt fyrir hert samkomubann.
mbl.is/Kristinn Magnússon
- Sérstakar reglur gilda um matvöruverslanir og lyfjabúðir. Þar verður heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu, að því gefnu að hægt sé að halda a.m.k. tveggja metra fjarlægð milli einstaklinga. Ef matvöruverslanir eru yfir 1.000 m2 er heimilt að hleypa til viðbótar einum einstaklingi fyrir hverja 10 m2 þar umfram en þó aldrei fleiri en 200 viðskiptavinum.
- Sundlaugum, líkamsræktarstöðvum, skemmtistöðum, spilasölum, spilakössum og söfnum skal lokað meðan á þessum takmörkunum stendur.
- Starfsemi og þjónusta sem krefst mikillar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mikilli nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþróttastarf og einnig allar hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur og önnur sambærileg starfsemi. Þetta á einnig við um íþróttastarf þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér, s.s. skíðalyftur.
Grunnskólar og leikskólar verða enn opnir með þeim takmörkunum sem verið hafa undanfarna viku.
Ræktarþyrstir nýttu kvöldið til að svitna vel í tækjasal World Class í Laugum áður en skellt var í lás vegna herts samkomubanns.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Gildistími verður óbreyttur, þ.e. til 12. apríl næstkomandi. Takmörkunin tekur til landsins alls. Stjórnvöld endurmeta takmörkunina eftir því sem efni standa til, hvort heldur til að aflétta henni fyrr eða framlengja gildistímann.
Hér má sjá auglýsingu heilbrigðisráðherra í Stjórnartíðindum vegna herts samkomubanns.
Hér má nálgast upplýsingar almannavarna um hert samkomubann.