Um fjögur þúsund umsóknir um atvinnuleysisbætur vegna skerts starfshlutfalls höfðu borist Vinnumálastofnun klukkan 16 í dag. Opnað var fyrir umsóknir í hádeginu.
Alþingi samþykkti á föstudag frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitenda, svokallaða hlutastarfaleið.
Samkvæmt lögunum getur fólk sem verið hefur í fullu starfi farið niður í allt að 25 prósenta starfshlutfall og átt rétt á bótum. Þeir sem eru með 400 þúsund eða minna í mánaðarlaun fá fullar bætur á móti skertu hlutfalli í vinnu. Sótt er um í gegnum mínar síður á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að stefnt sé að því að greiða fyrstu greiðslurnar 31. mars. Einhverjar greiðslur geti hins vegar dregist fram í byrjun apríl. Allar umsóknir gildi afturvirkt frá 15. mars.
Haft er eftir Ásmundi að markmiðið með lagasetningunni sé einfalt; að stuðla að því að vinnuveitendur haldi ráðningarsambandi við starfsmenn sína eins og frekast sé unnt.
„Þessi miklu viðbrögð sýna að þessar aðgerðir eru að virka og við ætlum að fara í gegnum þetta saman og að hér verði kröftug viðspyrna í þessu tímabundna ástandi sem faraldurinn er.”
Haft er eftir Unni Sverrisdóttur, forstjóra stofnunarinnar, að fagnaðarefni sé hversu hratt hafi gengið að vinna þetta verkefni. Mikið álag hafi verið á vef stofnunarinnar í dag.
„Umsóknirnar sem okkur hafa borist í dag eru fjölmargar og við hvetjum bæði atvinnurekendur og launafólk til þess að kynna sér þessi úrræði vel.”