43 sagt upp á Akranesi

Fyrirtækin Skaginn 3x og Þorgeir & Ellert tilkynntu uppsagnir 43 starfsmanna á Akranesi í gær vegna samdráttar. Þetta kemur fram á facebooksíðu Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness.

„Það þarf ekkert að fjölyrða um að ástandið á vinnumarkaðnum mun verða gríðarlega erfitt vegna Covid 19 og þess mikla efnahagssamdráttar sem af veirunni hlýst.

Vissulega munu lög um skert starfshlutfall hjálpa til við að fyrirtæki reyni eins og kostur er að halda ráðningarsambandi við starfsfólk eins lengi og kostur er. Úrræðið er gott og ég hvet fyrirtæki í hvívetna að nýta sér þessi úrræði í stað þess að segja upp starfsfólki.

Það er ljóst að fram undan eru miklar áskoranir á íslenskum vinnumarkaði og ég held að það sé óumflýjanlegt að stjórnvöld, verkalýðshreyfingin og Samtök atvinnulífsins taki höndum saman sem aldrei fyrr og leiti allra leiða til að verja störfin, launafólk og heimilin.

Í þessu samhengi verðum við að vera öll tilbúin að hugsa út fyrir kassann og velta öllum leiðum upp við að verja störfin og íslensk heimili.

Við erum öll í sama bátnum og það verða allir að róa í sömu átt til við komumst út úr þessu ölduróti sem við erum nú í og ég veit að okkur mun takast það með samstilltu róðrarlagi.

Ef við ekki stöndum saman í því að verja atvinnuöryggi og lífsviðurværi launafólks og afkomu heimilanna getur illa farið. Nú þurfum við öll sem eitt að standa saman og reyna að milda það mikla efnahagshögg sem við erum að fá á okkur tímabundið, en með samstilltu átaki stjórnvalda, verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins mun okkur takast það,“ skrifar Vilhjálmur.

Skaginn 3X hannar meðal annars flokkunarbúnað fyrir skip.
Skaginn 3X hannar meðal annars flokkunarbúnað fyrir skip.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert