Alls hafa 802 greinst með kórónuveiruna hér á landi og er þetta fjölgun um 65 á einum sólarhring en þetta eru mun færri sem hafa greinst í dag miðað við gærdaginn. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum á covid.is.
Samtals eru 734 í einangrun. Fimmtán eru á sjúkrahúsi og 68 hafa jafnað sig eftir að hafa fengið veiruna. Fram kom á mbl.is fyrr í dag þrír einstaklingar eru í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans.
9.889 manns eru í sóttkví og 2.427 hafa lokið sóttkví. 12.615 sýni hafa verið tekin.
Flestir sem greinast eru á aldursbilinu 40 til 49 ára eða 191 talsins. Fjórir einstaklingar yfir áttrætt hafa greinst með veiruna og þar af eru þrír eldri en nírætt.
Veiran hefur greinst í öllum landshlutum. Flestir sem hafa greinst með veiruna eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu eða 620 og þar eru 5.113 í sóttkví. Á Suðurlandi eru 92 með veiruna og 1.181 í sóttkví og níu smit eru óstaðsett.