Framkvæma fyrir 1,6 milljarða við Grensás

Húsnæðið að Grensási er 50 ára gamalt og standist ekki …
Húsnæðið að Grensási er 50 ára gamalt og standist ekki nútímakröfur varðandi sjúkraþjónustu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja stækkun endurhæfingardeildar Landspítala við Grensás í forgang og er ráðgert að hefja framkvæmdir strax. Gert er ráð fyrir að verja 200 milljónum króna til framkvæmdanna á þessu ári en áætlaður heildarkostnaður er 1,6 milljarðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að húsnæðið að Grensási sé 50 ára gamalt og standist ekki nútímakröfur varðandi sjúkraþjónustu.

Mikill undirbúningur hefur þegar farið fram við frumhönnun viðbyggingar og hefur deiliskipulag verið samþykkt. Stærð viðbyggingar verður 3.100 fm2   og að lágmarki 35 endurhæfingarrúm á tveimur sólarhringsdeildum. Öll þjálfunaraðstaða og meðferðarrými verða til fyrirmyndar og mun uppbyggingin gjörbylta aðstöðu til endurhæfingar á Grensási og þar með til endurhæfingarþjónustu í íslensku heilbrigðiskerfi. 

„Þörf fyrir endurhæfingarrými fer ört vaxandi samhliða miklum framförum í meðferð alvarlegra sjúkdóma og áverka. Að hraða þessari uppbyggingu og efla getu Grensáss til að sinna fólki sem þarf á endurhæfingu að halda er svo sannarlega arðbær fjárfesting“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Stækkun Grensáss er liður í því fjárfestingarátaki sem stjórnvöld hafa boðað til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. 

Nánar á vef Stjórnarráðsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert