Óviðunandi að fyrirtæki reyni að nýta sér aðstæður starfsmanna

mbl.is/Kristinn Magnússon

Dæmi eru um að atvinnurekendur hafi lækkað starfshlutfall starfsmanna en krefjist vinnuframlags umfram hið nýja hlutfall. Ábendingar um þetta hafa borist BHM og BSRB, sem og aðildarfélögum bandalaganna. 

Fram kemur í tilkynningu frá félögunum að þetta gangi þvert gegn lagabreytingum sem Alþingi gerði nýverið til að auðvelda atvinnurekendum að halda starfsfólki og koma í veg fyrir uppsagnir vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa af völdum COVID-19-heimsfaraldursins.

Óheimilt er að krefjast vinnuframlags frá starfsfólki umfram hið nýja starfshlutfall, enda kemur lækkunin til vegna samdráttar í þjónustu fyrirtækja og fækkunar verkefna,“ segir í tilkynningu. 

BHM og BSRB hvetja stjórnendur fyrirtækja og stofnana til að fara í einu og öllu eftir lögunum og munu bregðast hart við ábendingum um brot. Þá minna heildarsamtökin á að þessum lagaheimildum er ætlað að hafa jákvæð áhrif á vinnumarkaði á þessum erfiðu tímum. Þegar þessum tímabundnu þrengingum lýkur munu fyrirtækin þurfa aftur á sínum starfsmönnum að halda í hærra starfshlutfalli.

„Það er með öllu óviðunandi að fyrirtæki reyni að nýta sér aðstæður starfsmanna sem eru að leggja sitt af mörkum til að vinnustaðurinn komist í gegnum tímabundna erfiðleika með því að taka á sig kjaraskerðingu.“

Dæmi eru um að atvinnurekendur hafi lækkað starfshlutfall starfsmanna en …
Dæmi eru um að atvinnurekendur hafi lækkað starfshlutfall starfsmanna en krefjist vinnuframlags umfram hið nýja hlutfall. mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert