Mjólkursamsalan telur óhjákvæmilegt að Hæstiréttur Íslands fjalli um dóm Landsréttar sem staðfesti dóm héraðsdóms um að MS beri að greiða 480 milljónir kr. í sekt til ríkisins vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og brota á upplýsingaskyldu.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Ari Edwald forstjóri að MS muni leita eftir heimild til áfrýjunar til Hæstaréttar.
Í dómi Landsréttar segir að Mjólkursamsalan sé í markaðsráðandi stöðu og hafi selt Kaupfélagi Skagfirðinga hrámjólk á allt að 17% lægra verði en öðrum fyrirtækjum. Sama varan hafi því verið seld ólíkum aðilum á mjög mismunandi verði og hafi það veikt samkeppnisstöðu þeirra sem hærra verðinu sættu. Ekki séu fyrir hendi hlutlægar ástæður er réttlæti verðmismuninn. Taldi Landsréttur ótvírætt að MS hefði brotið gegn samkeppnislögum. Telja yrði brotið alvarlegt auk þess sem það hefði staðið lengi og verið „augljóslega mjög til þess fallið að raska samkeppnisstöðu“. Þá hefði brotið lotið að mikilvægri neysluvöru og snert á þann hátt allan almenning á Íslandi.
„Þessi niðurstaða Landsréttar kemur Mjólkursamsölunni mjög á óvart, enda telur fyrirtækið sig hafa farið að öllu leyti að lögum við framkvæmd á samstarfi til að hagræða og lækka verð á mjólkurvörum til neytenda,“ segir Ari Edwald. „Þessi niðurstaða Landsréttar kemur Mjólkursamsölunni mjög á óvart, enda telur fyrirtækið sig hafa farið að öllu leyti að lögum við framkvæmd á samstarfi til að hagræða og lækka verð á mjólkurvörum til neytenda,“ segir Ari Edwald. „Að mínu mati er alveg ljóst að túlkun Landsréttar á ákvæðum búvörulaga skapar mikla óvissu um heimildir afurðastöðva í mjólkuriðnaði til að hagræða og lækka vöruverð með verkaskiptingu. Slík verkaskipting fær ekki staðist nema með jöfnun framlegðar milli þeirra sem taka þátt í verkaskiptingunni. Að öðrum kosti er enginn tilbúinn að taka að sér að framleiða þær vörur sem gefa minnst af sér. Mjólkursamsalan telur því óhjákvæmilegt að Hæstiréttur Íslands fjalli um þetta mál og mun leita eftir heimild til áfrýjunar þangað.“