Ákvörðun hefur verið tekin um að makar eða aðrir aðstandendur fái ekki að vera viðstaddir á skurðstofu þegar keisaraskurður fer fram.
Þetta kom fram í máli Huldu Hjartardóttur, yfirlæknis fæðingarþjónustu á kvenna- og barnasviði Landspítala, á upplýsingafundi vegna kórónuveirufaraldursins.
Sagði hún að maki eða annar frískur aðstandandi fengi að heimsækja móður og barn þegar þau væru komin aftur inn á deild.