Handteknir vegna andláts konu

mbl.is/Eggert

Kona um sextugt fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði í nótt en tilkynning um málið barst lögreglu um  hálftvöleytið. Hún hélt þegar á vettvang en konan var látin þegar að var komið.

Tveir karlar, annar um þrítugt og hinn á sextugsaldri, voru sömuleiðis á heimilinu og voru þeir báðir handteknir í þágu rannsóknarinnar.

Rannsókn málsins er á frumstigi, en hún beinist m.a. að því hvort mennirnir hafi átt þátt í andláti konunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert