Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að lögreglunni hafi verið mjög brugðið þegar niðurstaða réttarmeinafræðings lá fyrir vegna andláts konu á sextugsaldri sem fannst látin á heimili sínu í Sandgerði 28. mars síðastliðinn. Samkvæmt heimildum mbl.is var þrengt að öndunarvegi konunnar.
Ættingi konunnar tilkynnti lát hennar að kvöldi 28. mars. Rannsóknarlögreglumaður fór þegar ásamt lækni og presti á staðinn. Ekkert á vettvangi benti til þess að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað. Sama máli gegndi um líkskoðun á sjúkrastofnun.
Sambýlismaður konunnar, sem er líka á sextugsaldri, var handtekinn um leið og niðurstaða réttarmeinafræðings lá fyrir 1. apríl, en þar kom fram að sterkur grunur léki á að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti. Rætt hefur verið við fleiri úr fjölskyldunni en einungis sambýlismaðurinn hefur réttarstöðu grunaðs manns.
Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald frá 1. apríl til 8. apríl. Maðurinn veitti ekki mótspyrnu við handtökuna samkvæmt heimildum mbl.is en úrskurðurinn var kærður. Landsréttur staðfesti úrskurðinn 3. apríl. Ákvörðun um hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum verður tekin síðar í dag eða í fyrramálið og fer eftir því hvernig rannsókn málsins miðar að sögn Ólafs Helga sem fer fram „af fullum krafti“ að hans sögn. Meðal þess sem beðið er eftir er endanleg niðurstaða krufningarskýrslu.
Ólafur Helgi segir ljóst að grunur leiki á heimilisofbeldi en segist ekki geta staðfest á þessu stigi málsins hvort þrengt hafi verið að öndunarvegi konunnar. „Það er alveg ljóst að þegar andlát ber að með grunsamlegum hætti inni á heimili og grunur leikur á um að ofbeldi hafi verið beitt, þá er það ekkert annað en heimilisofbeldi, alveg sama hvernig það hefur orðið til,“ segir hann.
Rannsóknardeild lögreglunnar hefur annað andlát til rannsóknar þar sem grunur er um heimilisofbeldi. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri sagði í Morgunþætti Rásar 1 og 2 í morgun allt benda til þess að þær hefðu verið fórnarlömb heimilisofbeldis.
Um það hefur verið fjallað í fjölmiðlum og víðar að við aðstæður sem þessar aukist hætta á heimilisofbeldi talsvert. Ólafur Helgi tekur undir það. „Það er áhyggjuefni lögreglunnar á Suðurnesjum að heimilisofbeldi kunni að aukast. Það má ætla að í því mikla návígi og samkomubanni sem gildir í dag kunni það að leiða til óróa á heimilunum,“ segir hann.
Tilkynningum um heimilisofbeldi hefur ekki fjölgað í umdæminu, líkt og dæmi eru um á landsvísu, en Ólafur Helgi býst við að þeim komi til með að fjölga eftir því sem líður á samkomubannið. „Það kann að gerast síðar, nú eru páskarnir eftir. Núverandi ástand kallar á að heimilisofbeldi aukist en það hefur ekki sést fyrir utan þetta eina dæmi.“