Fjögur leikskólabörn smituð

Fjögur leikskólabörn og 33 grunnskólanemendur hafa greinst með kórónuveiru í Reykjavík. Þá hafa einnig 28 starfsmenn leikskóla og 18 starfsmenn grunnskóla smitast af veirunni, en smit hafa nú komið upp í 11 leikskólum og 20 grunnskólum Reykjavíkurborgar.

Kemur þetta fram í svari skóla- og frístundasviðs við fyrirspurn Morgunblaðsins, en tölurnar miðast við 2. apríl. Í Reykjavík eru nú 355 grunnskólanemendur í sóttkví og 3.351 í leyfi frá skóla að ósk foreldra. Fjöldi barna á leikskólaaldri í sóttkví er 166 og eru 1.448 leikskólabörn í leyfi að ósk foreldra. Alls er því 5.320 leik- og grunnskólabörnum í Reykjavík haldið heima þessa dagana.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgublaðinu í dag segir Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingar og formaður skóla- og frístundaráðs, ljóst að ákveðinn hópur foreldra vilji hafa vaðið fyrir neðan sig og vísar hann þar til mikils fjölda barna í leyfi frá skóla.

„Ástæðurnar geta verið mýmargar; persónulegar eða tengdar heilsufari barnanna eða einhverra á heimilinu. Við höfum fullan skilning á því,“ segir hann og bætir við að Reykjavíkurborg hafi lagt mikið kapp á að koma í veg fyrir smit inni í skólum. Segir Skúli það hafa heppnast vel til þessa og bendir í því samhengi á að leikskólabörn séu 6.237 talsins og grunnskólabörn 15.322. „Hlutfallslega eru þetta því mjög lágar tölur,“ segir hann.

Nánar um þetta mál á mbl.is hér:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert